Félag járniðnaðarmanna á Ísafirði 80 ára 1944-2024
Á
gamlársdag árið 1944 komu tíu iðnaðarmenn saman á Ísafirði og stofnuðu Félag
járniðnaðarmanna á Ísafirði. Í lögum félagins stóð: „Tilgangur félagsins er að
sameina alla starfandi járniðnaðarmenn á Ísafirði og nágrenni, til þess, með
öflugu samstarfi, að beita sjer fyrir bættum vinnuskilyrðum, hækkun kaupgjalds,
styttum vinnutíma og auknum rjettindum.“
Flestir stofnfélaga voru vélvirkjar sem störfuðu við vélsmiðjur í bænum,
en þar voru líka tveir járnsmiðir og tveir pípulagningamenn. Helsta ástæðan
fyrir stofnun félagins var sú að nokkru áður eignuðust stærstu útgerðarfélög
bæjarins Vélsmiðjuna Þór, sem var stærsti atvinnurekandi í járniðnaði í bænum.
Áður hafði vélsmiðjan verið í eigu iðnaðarmanna, sem nú urðu launamenn en ekki
eigendur.
Skilyrði til inngöngu í félagið var bundið við sveina í
járniðnaði. Í lögunum sagði: „Rjett til upptöku í félagið hefur hver sá, er
vinnur að járniðnaði, og hefur til þess full rjettindi samkvæmt lögum, enda
beri hverjum járniðnaðarmanni skylda til þess að ganga í félagið þegar hann
hefur uppfyllt áður nefn(t) skilyrði.“
Frá þessu var mikilvæg undantekning, vegna þess að félagið var
stéttarfélag. Þeir járniðnaðarmenn sem „hafa á hendi sjálfstæða
verkstæðisstjórn“ gátu ekki orðið félagar. Það voru verkstæðiseigendur með menn
í vinnu og þeir sem sinntu eingöngu verkstjórn.
Á
stofnfundinum var kosin fyrsta stjórn félagsins. Benóný Baldvinsson vélvirki
var formaður, varaformaður var Ingimundur Guðmundsson vélvirki, ritari
Guðbrandur Kristinsson pípulagningamaður, vararitari Sigurleifur Jóhannsson
járnsmiður og gjaldkeri Guðfinnur Sigmundsson vélvirki. Allir þessi menn settu
svip sinn á atvinnulíf bæjarins um miðja síðustu öld og tengdust upphafi véla
og vélsmiðja í landinu.
Vélar og verkstæði
Ísafjarðarkaupstaður
dafnaði hratt með tilkomu skútuútgerðar og saltfiskverslunar eftir miðja 19.
öld. Iðnaðarmönnum í bænum fjölgaði og árið 1888 stofnuðu þeir
Iðnaðarmannafélag Ísafjarðar. Iðnaðarmannafélagið stofnaði kvöldskóla
iðnaðarmanna árið 1905, sem var annar elsti iðnskóli á landinu. Þannig er löng
hefð fyrir því að iðnaðarmenn geti orðið fullnuma í iðn sinni á Ísafirði.
Vestfirðingar
kynntust vélum á undan öðrum landsmönnum. Um og fyrir
1890 komu norskir hvalveiðimenn og byggðu átta hvalveiðistöðvar á Vestfjörðum,
þar af fimm við Ísafjarðardjúp. Hvalstöðvarnar fluttu með sér járnsmiði og
vélsmiði frá Noregi og Svíþjóð til að sinna viðhaldi og viðgerðum á gufuvélum
hvalveiðiskipanna og vélum sem settar voru upp á stasjónunum í landi. Margir
Vestfirðingar fengu vinnu í hvalnum og kynntust þar gufuaflinu. Það má ímynda
sér upplitið á ungum piltum sem þekktu ekki annað en orfið og árina, þegar þeir
sáu í fyrsta sinn öxul, sveifarás, spil og reimar sem drógu hvalina upp á
skurðarplanið eða hífðu stór spikstykki og bein upp í suðukatlana í
hvalstöðvunum.
Þekking norsku vélsmiðanna skilaði sér áfram. Þannig lærði
Ingimundur Guðmundsson fyrsti varaformaður Félags járniðnaðaarmanna hjá Jens
Peter Clausen í Hnífsdal. Jens Peter kom hingað frá Noregi til að starfa við
hvalveiðistöðina á Dvergasteini í Álftafirði, rak síðar mótorverkstæði bæði á
Ísafirði og í Hnífsdal á árunum 1907-1916 og fluttist loks til Önundarfjarðar
og starfaði við bræðsluna á Sólbakka.
Ísafjörður var vagga vélbátabyltingarinnar, þegar fyrsta vélin var
sett í sexæringinn Stanley árið 1902. Um leið kom til bæjarins fyrsti
vélvirkinn, ungur drengur frá Esbjerg í Danmörku, sem fylgdi Möllerup-vélinni
sem sett var í bátinn. Hann hét Jens H. Jessen og stofnaði síðar fyrstu
vélsmiðjuna í bænum. Vélsmiðja J. H. Jessen tók fjölda lærlinga sem stunduðu
bæði vélstjórn á bátum og skipum eða vélsmíði á verkstæðum. Einn þeirra sem
lærði þar var Benóný Baldvinsson, fyrsti
formaður Félags járniðnaðarmanna á Ísafirði. Hann var fæddur á Ísafirði árið 1908 og hóf
nám í vélvirkjun árið 1927, fór þaðan í vélstjórnarnám og útskrifaðist frá
Vélskólanum í Reykjavík árið 1931. Benóný var um tíma vélatjóri á togurum og
línuveiðurum, en starfaði lengst af hjá Vélsmiðjunni Þór á Ísafirði. Síðar
starfrækti hann vélsmiðju ásamt Magnúsi bróður sínum í bakhúsi við
Fjarðarstræti 47. Benóný lést á Ísafirði árið 1965.
Vélsmiðjan Þór var helsta vélsmiðja bæjarins í marga áratugi. Smiðjan
stóð fyrst á Hæstakaupstaðarlóðinni þar sem nú er Fjarðarstræti. Árið 1942
komst fyrirtækið í eigu helstu útgerðarfélaga á Ísafirði. Árið 1946 flutti Þór
í stórt og glæsilegt verkstæðis- og skrifstofuhúsnæði við Mjósundin. Skipasmíðastöð
Marzellíusar Bernharðssonar var annar helsti vinnustaður járniðnaðarmanna.
Marzellíus starfrækti dráttarbraut í Suðurtanga og tók jafnframt yfir gömlu
dráttarbrautina á Torfnesi, sem Bárður G. Tómasson skipaverkfræðingur stofnaði árið
1921. Járnsmiðir, vélsmiðir og eldsmiðir störfuðu við skipasmíðastöðina,
jafnvel þó að skipin væru eikarbátar. Vélsmiðjan Þór og Skipasmíðastöð
Marzellíusar Bernharðssonar voru stærstu vinnustaðir járniðnaðarmanna á
Ísafirði þegar Félag járniðnaðarmanna var stofnað.
Fyrstu samningarnir
Strax eftir stofnun Félags járniðnaðarmanna á Ísafirði hófust
viðræður við atvinnurekendur um kjarasamning. Samningar Félags járniðnaðarmanna
í Reykjavík voru lagðir til grundvallar. Samningar tókust greiðlega við
Vélsmiðjuna Þór hf., en Marzellíus Bernharðsson neitaði að undirrita samning
við félagið á þeirri forsendu að hann ræki ekki fyrirtæki í járniðnaði. Það
breyttist þó síðar.
Fyrstu samningar félagsins voru undirritaðir 15. janúar 1945.
Benóný Baldvinsson, Sigurleifur Jóhannsson og Guðfinnur Sigmundsson undirrituðu
samninginn fyrir hönd járniðnaðarmanna og Ólafur Guðmundsson framkvæmdastjóri
fyrir Vélsmiðjuna Þór hf. Grunnkaup sveina var 158 krónur á viku og skyldi
hækka með vísitölu. Tímakaupið var 3,30 krónur. Vinna í kötlum og skipstönkum
skyldi borga með 10% álagi. „Eigi hefir sveinn kröfu til launa fyrir þær
vinnustundir, eða hluta úr vinnustundum, sem hann eigi mætir til vinnu sinnar“,
segir í annarri grein samningsins.
Vinnuvikan var 48 tímar, frá 7.30 til 17.00 virka daga, nema
mánudaga 7.30 til 18.00 og laugardaga 7.30 til 12.00. Á veturna mátti láta
vinna 8 tíma á dag 5 daga vikunnar. Matartími var frá 12-13 og kvöldmatartími
klukkan 19, ef unnið var lengur á kvöldin. Þá var gert ráð fyrir tveimur 15
mínútna kaffitímum á dag, á launum. Eftirvinna var frá 17 til 21 með 50% álagi
og næturvinna eftir klukkan 21 og eftir 12 á laugardögum með 100% álagi á
dagvinnutaxta. Dagvinna var til klukkan 12 á aðfangadag og á gamlársdag. Eftir
eins árs vinnu áttu sveinar rétt á tveggja vikna sumarfríi með fullum launum.
Starf Járniðnaðarmannafélagsins snerist fyrst og fremst um samninga
við Vélsmiðjuna Þór og aðrar vélsmiðjur í bænum og svo við Skipasmíðastöð
Marzellíusar Bernharðssonar. Félagið sigldi oftast lygnan sjó með því að
samningar járniðnaðarmanna í Reykjavík voru hafðir að fyrirmynd félagsins á
Ísafirði.
Atvinnuástand var gott árið 1944 þega félagið var stofnað, en góðæri
stríðsáranna og bjartsýni eftirstríðsáranna með endurnýjun báta- og togaraflotans
tók fljótlega enda. Versnandi viðskiptakjör og minnkandi þorksafli gerðu
útgerðinni erfitt um vik og þá lenti Vélsmiðjan Þór í erfiðleikum með að standa
skil á launum starfsmanna. Haustið 1950 komu járniðnaðarmenn saman á fund og
kröfðust þess að vélsmiðjan stæði við launagreiðslur. Í svari forstjóra Þórs
kom fram að fyrirtækið ætti við fjárhagserfiðleika að etja og fór hann fram á
að starfsmenn sýndu þolinmæði, á meðan komist yrði yfir örðugasta hjallann. Járniðnaðarmenn
hótuðu að leggja niður vinnu, ef ekki yrði staðið við launagreiðslur, en hættu
við það gegn loforði fyrirtækisins um reglulegar útborganir og greiðslu
áfallinna launa. Erfiðleikar vélsmiðjunnar voru ekki á enda því veturinn 1951
var samþykkt breytt vinnutilhögun vegna lítillar vinnu, þannig að unnið var í
tveim flokkum, sitt hvora vikuna. Fyrri loforð um greiðslu vinnulauna voru ekki
efnd fyrr en komið var fram á sumar og útistandandi launaskuld var greidd í tveimur
greiðslum í júní og júlí 1951. Þannig lauk þessum erfiða vetri og vikulegar
útborganir á miðvikudögum tóku aftur gildi.
Fyrsta áratuginn var enginn sjúkrasjóður fyrir félagsmenn en
styrkir vegna veikinda voru einstöku sinnum veittir úr félagssjóði. Það var
ekki fyrr en á aðalfundi 1955 sem Guðmundur B. Jónsson hóf umræður um stofnun
sjúkrasjóðs við félagið. Gunnar Örn Gunnarsson rennismiður var kosinn formaður
undirbúningsnefndar. Um leið var félagsgjaldið hækkað úr 3 krónum í 5 krónur á
viku. Strax á næsta fundi haustið 1955 var samþykkt reglugerð fyrir Slysa- og
sjúkrasjóð Félags járniðnaðarmanna á Ísafirði. Stofnframlag félagsins í sjóðinn
var ákveðið 6.000 krónur og að helmingur af tekjum félagsins rynnu í sjóðinn.
Sjúkrasjóður átti að tryggja félagsmönnum lágmarkslaun í allt að
10 vikur, eftir að samningsbundnum greiðslum frá atvinnurekanda lauk. Árið 1955
voru það 182 krónur á viku fyrir einhleyping. Síðar var hlutfall félagsgjalda
sem rann í sjúkrasjóð lækkað og loks fellt niður með lagabreytingu árið 1961,
enda komu þá til greiðslur atvinnurekenda í sjúkrasjóði verkalýðsfélaga.
Á sjötta áratugnum voru erfiðleikar í sjávarútvegi og lítil vinna
hjá smiðjunum. Margir járniðnaðarmenn fóru þá tímabundið til vinnu suður á
Keflavíkurflugvöll. Um og eftir 1955 batnaði staðan og hefðbundin vinna við
viðhald véla og búnaðar í stækkandi bátaflota jókst. Við það bættist vinna við framkvæmdir
á vegum bandaríska hersins við byggingu ratsjárstöðvar á Straumnesfjalli við
Aðalvík.
Inn í Alþýðusambandið
Félag járniðnaðarmanna á Ísafirði stóð utan heildarsamtaka
launafólks fyrsta áratuginn sem það starfaði. Á aðalfundi félagsins í desember
1954 vakti Valdimar S. Jónsson máls á því að félagið ætti gerast aðili að
Alþýðusambandi Íslands. En ekki var neitt verið að rjúka til, því tveim árum síðar
sendi Jóhannes Þorsteinsson starfandi formaður fyrirspurn til ASÍ ásamt lögum
félagsins og nafnaskrá. Þar kom fram að félagsmenn væru 20 talsins, 8
vélsmiðir, 5 járnsmiðir, 4 rennismiðir og 2 bifvélavirkjar, auk eins
heiðursfélaga. Það var loks á aðalfundi félagsins 1957 þegar Sigurður Th.
Ingvarsson rennismiður var kosinn formaður að hann lagði til að umsókn félagsins
um aðild að Alþýðusambandi Íslands yrði „endurnýjuð“ einsog það var orðað í
fundargerð. Var það einróma samþykkt. Fimm árum síðar, árið 1962, gerðust
járniðnaðarmenn aðilar að Alþýðusambandi Vestfjarða. Það ár varð Pétur
Sigurðsson kosinn formaður félagsins og markaði það upphafið af löngum ferli
hans í forystu verkalýðshreyfingarinnar á Vestfjörðum.
Sumarbústaður í Tunguskógi og í
Heydal
Félagsmenn Járniðnaðarmannafélagsins voru tregir til að samþykkja
hækkun á félagsgjöldum. Tillögur stjórnarinnar um hækkun árgjalds voru ítrekað
felldar á aðalfundum. Árið 1962 sýndi ársreikningurinn halla að upphæð 2427
krónur. Þá var loks samþykkt að hækka gjaldið úr 10 í 15 krónur á viku. Helstu
útgjöld félagsins voru skattgreiðslur til ASÍ og ASV, kostnaður við þátttöku á
þingi ASÍ og kaup á ritvél fyrir félagið.
Á þessum árum kom fram hugmynd um að félagið eignaðist orlofshús,
eða sumarbústað, í nágrenni bæjarins. Aðalfundur ársins 1965 fól stjórninni að
athuga málið. Um sumarið gafst félaginu kostur á að kaupa sumarbústað í
Tungudal inn af Ísafirði fyrir 70 þúsund krónur. Skiptar skoðanir voru um málið
og var ákveðið að viðhafa leynilega allsherjaratkvæðagreiðslu til að útkljá
það. Náðist til allra félagsmanna nema eins, sem ekki var í bænum. Voru kaupin
samþykkt með 9 atkvæðum gegn 6. Járniðnaðarmenn nýttu sumarbústaðinn í
Tunguskógi vel fyrstu árin, en síðar minnkaði áhuginn og félagið seldi húsið. Í
staðinn voru fest kaup á sumarbústað í Heydal í Mjóafirði í Ísafjarðardjúpi,
sem félagið átti í áratug. Síðustu ár hafa járniðnaðarmenn átt aðild að
orlofssjóði og orlofsíbúðum í samstarfi við Verkalýðsfélag Vestfirðinga.
Breskir togarar og ísfirsk
stálskip
Vélsmiðjan
Þór var lengi eitt stærsta iðnfyrirtæki á Ísafirði. Um 1960 störfuðu þar um 30
manns á vélaverkstæði, í málmsteypu og plötusmiðju, auk vinnu á lager og
skrifstofu. Vinnan fólst að mestu í viðgerðum og smíði fyrir útgerð og
fiskvinnslu á Ísafirði og nágrenni. Við vélaviðgerðir í bátum og togurum og við
niðursetningar á vélum og spilum í báta. Vinna var mikil í breskum togurum á
sjötta og sjöunda áratugnum, allt upp í á annað hundrað skip á ári. Stundum
voru fimm til sex skip í einu í Ísafjarðarhöfn til viðgerðar. Samskiptin við
„tjallana“ voru yfirleitt góð, en þó gat brugðið út af því og togarakarlarnir
reyndu jafnvel að villa um fyrir iðnaðarmönnum til að tefja fyrir viðgerðum,
til að lengja hafnarfríið.
Um 1960 er tekið að flytja til landsins stálskip til fiskveiða og
mikil endurnýjun átti sér stað á fiskiskipaflotanum. Skipasmíðastöðin færði út
kvíarnar með nýrri dráttarbraut neðst á Suðurtanga, verkstæði og smiðju og stóru
skipanausti undir þaki, þar sem hægt var að byggja allt upp í 300 tonna stálskip.
Með þessum framkvæmdum var komin fullkomin aðstaða til skipaviðgerða og
stálskipasmíða í Suðurtanga. Fyrsta stálskipið sem rann af stokkunum í
Skipasmíðastöð Marzellíusar Bernharðssonar á Ísafirði var Kofri ÍS, 180
brúttótonn að stærð, smíðaður fyrir Súðvíkinga árið 1969.
Með stálskipasmíðinni fjölgaði starfsmönnum stöðvarinnar,
járnsmíðin var mannfrek og sett var upp vélaverkstæði og renniverkstæði. Nýir
iðnaðarmenn voru ráðnir til starfa og sumir fluttu sig úr Þór og niður í
Neðsta. Á þeim tíma voru starfsmenn fyrirtækisins um 60 talsins og fjöldi nema
í járniðnaði hóf þar sinn feril.
Félögum fjölgar með öflugu
atvinnulífi
Með nýjum og stærri fiskiskipum, sókn breskra togara á Íslandsmið
og ekki síst smíði stálskipa í Skipasmíðastöð M. Bernharðssonar fjölgaði í
stétt járniðnaðarmanna á Ísafirði og félagsmönnum fjölgaði. Árið 1969 foru fjórir
nýir teknir inn í félagið og árið eftir fjölgaði félagsmönnum úr 19 í 23,
samkvæmt skýrslu félagsins til ASÍ.
Kjarasamningar voru í uppnámi árin 1969-1970 í kjölfar
efnahagserfiðleika vegna lækkandi útflutningsverðs frystra fiskafurða og hruni
í síldveiðum. Félag járniðnaðarmanna á Ísafirði gerðist aðili að Málm- og
skipasmiðasambandi Íslands árið 1969 til að styrkja stöðu sína. Kjarasamningar
voru lausir og járniðnaðarmenn á Ísafirði ræddu sérkröfur sínar á félagsfundi.
Lengra orlof fyrir eldri starfsmenn, 22 dagar eftir 10 ára starf og 24 dagar
eftir 20 ára starf. Þá vildu menn að 10% álag fyrir óþrifavinnu kæmi jafnt á
allt kaup. Atvinnurekendur höfnuðu sérkröfum félagsins, en vildu halda sig við
Reykjavíkursamninga óbreytta. Ekki vildu félagsmenn sætta sig við það
umræðulaust og bættu nú við kröfu um að í sumarfríum væri vinnuvikan talin 5
dagar og laugardagarnir ekki taldir með. Öllum sérkröfum járniðnaðarmanna var
hafnað og því þurftu félagsmenn að ákveða hvort þeir vildu fylgja þeim eftir
með verkfalli. Tillaga um vinnustöðvun var felld með sjö atkvæðum, en fimm voru
með. Reykjavíkursamningarnir voru látnir gilda.
Með samningunum 1969 var komið á fót lífeyrissjóðum fyrir allt
launafólk í landinu. Félag járniðnaðarmanna á Ísafirði ákvað að ganga til
samstarfs við önnur verkalýðsfélög á svæðinu um stofnun Lífeyrissjóðs
Vestfirðinga.
Járniðnaðarmenn settu á næturvinnubann vorið 1970. Vélsmiðjurnar
voru vanar að láta menn vinna öllum stundum við viðgerðir á bátum og togurum,
sem leituðu viðgerða þegar bilirí varð. Tafir frá veiðum voru dýrar og því var
reynt að sinna nauðsynlegum viðgerðum strax og skipin komu í höfn og unnið á
meðan þurfti til að koma þeim aftur á veiðar. Sérstaklega átti þetta við um
viðgerðir á breskum eða þýskum togurum, sem leituðu inn á Ísafjörð til viðgerða
á þessum árum. Öllum tilslökunum á banni við yfirvinnu var hafnað, þrátt fyrir
mikinn þrýsting frá smiðjunum. Nýr kjarasamningur var samþykktur þar sem
dagvinnutíminn var styttur í 42 stundir á viku, frá 7.30 til 17.00 fimm daga
vikunnar, með matarhléi 12-13 og tveimur 15 mínútna kaffitímum klukkan 9.45 og
15.15. Næturvinnubannið var áfram í gildi út sumarið.
Umræður um stækkun félagssvæðisins komu upp með reglulegu
millibili í Félagi járniðnaðarmanna. Var horft til Bolungarvíkur um tíma, þar
sem var starfandi vélsmiðja með allt að tug járniðnaðarmanna. Önnur vélsmiðja
sem stóð á gömlum grunni var Vélsmiðja Guðmundar J. Sigurðssonar á Þingeyri. Fjórir
járniðnaðarmennn á Þingeyri gengu í félagið árið 1970, þeirra á meðal Kristján
Gunnarsson. Á næsta aðalfundi félagsins var ákvæði um félagssvæði breytt,
þannig að það náði yfir alla Vestfirði. Fram til þessa hefur þó stærsti hluti
félagsmanna ætíð starfað á Ísafirði.
Á árunum 1980-1990 fjölgaði félagsmönnum úr 25 í 50. Með nýjum og
öflugum framleiðslufyrirtækjum í málmiðnaði fjölgaði í stétt járniðnaðarmanna.
Pólstækni, 3X-stál, síðar Skaginn-3X, voru öflug iðnfyrirtæki í bænum fyrir og
eftir síðustu aldamót. En sviptingar hafa orðið í þessari grein. Starfsemi
Pólstækni var lögð niður eftir að félagið rann inn í Marel og eftir að Skaginn-3X
komst í eigu erlendra aðila, leið ekki á löngu þar til fyrirtækinu var lokað
fyrir ári síðan. Ný járniðnaðarfyrirtæki voru stofnuð á grunni þeirra eldri til
að sinna viðhaldi og nýsmíði fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi. Þannig helst
verkþekking og atvinna járniðnaðarmanna áfram á Ísafirði.
Líkt og áður hefur Félag járniðnaðarmanna á Ísafirði verið
samstíga öðrum félögum Samiðnar og ASÍ í kjarasamningum. Undantekning frá því
var þegar félagsmenn felldu kjarasamninga árið 2018, einir allra á landinu,
vegna ákvæða um breytingar á dagvinnutíma. Fékk félagið í gegn sérákvæði um
vinnutíma, sem gilti næstu árin.
Félag járniðnaðarmanna á Ísafirði mun halda áfram að berjast fyrir
réttindum félagsmanna sinna hér líkt og það hefur gert frá árinu 1944, eða í 80
ár. Núverandi formaður félagsins er Ragnar Högni Guðmundsson og aðrir
stjórnarmenn eru Steinn Daníel Þrastarson, Ragnar Ingi Kristjánsson, Halldór
Ingi Magnússon, Heiðar Ingi Marinósson, Stefán Línberg Halldórsson og Sigurður
Viðarsson.
Samantekt:
Sigurður Pétursson sagnfræðingur.
Heimild: Vindur í seglum III. Saga
verkalýðshreyfingar á Vestfjörðum 3. bindi. Ísafjörður og Ísafjarðardjúp
1931-1970. Ísafirði 2015.