F J I . I S

Hleð

9.1 – Rétt til styrkveitinga úr sjóðnum eiga þeir sem fullnægja eftirtöldum skilyrðum, sbr. Þó 10. gr.

9.2 – Einungis þeir sem sannanlega greiða eða er greitt af til sjóðsins og verið er að greiða fyrir til sjóðsins þegar réttur til aðstoðar myndast.

9.3 – Þeir sem greidd hafa verið af til sjóðsins 1 % iðgjöld í a.m.k. 6 mánuði.

9.4 – Hafi umsækjandi verið fullgildur aðili í sjúkrasjóði annars félags innan ASÍ þar til hann byrjar greiðslu til sjóðsins, sbr. 10.gr. 9.5.

Hafi iðgjöld til sjúkrasjóðs ekki verið greidd vegna sjóðfélaga, en hann getur fært sönnur á, að félagsgjöld til viðkomandi aðildarfélags hafi samkvæmt reglulega útgefnum launaseðlum verið dregin af launum hans síðustu 6 mánuði, skal hann njóta réttar eins og iðgjöld til sjúkrasjóðs hafi verið greidd.

Veikindi og slys Dagpeningagreiðslur í allt að 120 daga skv. 12. gr. reglugerðar sjóðsins.
Langveik og alvarlega fötluð börn Dagpeningagreiðslur í allt að 90 daga skv. 12. gr. reglugerðar sjóðsins.
Alvarleg veikindi maka Dagpeningagreiðslur í allt að 90 daga skv. 12. gr. reglugerðar sjóðsins.
Fráfall félagsmanns Eingreiddar dánarbætur skv. 12. gr. reglugerðar sjóðsins.

Heilsurækt Líkamsræktar og íþróttaiðkunar. Þó að hámarki 50.000 kr. einu sinni á 12 mánaða tímabili.
Krabbameinsleit Sjóðurinn endurgreiðir sjóðfélögum kostnað að fullu vegna krabbameinsleitar.
Speglanir Sjóðurinn endurgreiðir sjóðfélögum kostnað að fullu vegna speglana á meltingarveg, á öndunarfærum og nýrum, þó að hámarki 30.000 kr einu sinni á 24 mánaða tímabili.
Hjartarannsókn Sjóðurinn endurgreiðir sjóðfélögum kostnað að fullu vegna hjartarannsókna, þó að hámarki 30.000 kr. einu sinni á 24 mánaða tímabili.

Heyrnarhlífar Sjóðurinn greiðir að hámarki 30.000 kr. Einu sinni á 36 mánaða tímabili af viðurkenndum heyrnarhlífum til varnar heyrnarskaða.
Hjálpartæki/Stoðtæki Sjóðurinn greiðir að hámarki 35.000 kr. einu sinni á 36 mánaða tímabili af kostnaði vegna kaupa á nauðsynlegum hjálpar – eða stoðtækjum
Heyrnartæki Sjóðurinn greiðir að hámarki 100.000 kr. af kostnaði einu sinni á 48 mánaða tímabili fyrir hvort heyrnartækji
Gleraugu og linsur. Sjóðurinn greiðir að hámarki 100.000 kr. einu sinni á 48 mánaða tímabili af kostnaði við gleraugu og linsur
Augnaðgerð, augasteinaskipti Sjóðurinn greiðir greiðir kostnað vegna augnaðgerða að hámarki 50.000 kr. fyrir hvort auga einu sinni
Glasa- tæknifrjóvgun Sjóðurinn greiðir kostnaði vegna frjósemismeðferðar allt að tvisvar sinnum til sjóðsfélaga. þó ekki meira en 160.000 kr. í hvert skipti
Fæðingar/Ættleiðingar Sjóðurinn greiðir fæðingarstyrk að upphæð 100.000 kr. við fæðingu barns. við fjölburafæðingu hækkar styrkur um 100.000 kr. fyrir hvert barn. ef barn fæðist andvana eftir átján vikna meðgöngu er greitt 100% af styrk. heimilt er að veita styrk vegna ættleiðingar barns skv. þessari grein

Sjúkraþjálfun, sjúkranudd, kírpópraktor. Vegna endurhæfingar og meðferðar hjá löggiltum aðila endurgreiðir sjóðurinn 4.000 kr. í hvert skipti allt að 24 sinnum á ári.
Viðtalsmeðferðir Vegna meðferðar hjá sérfræðingi með löggilt starfsleyfi, s.s. sálfræðingi, félagsráðgjafa, geðlækni eða geðhjúkrunarfræðingi. Miðað er við að meðferðaraðili falli ekki undir afsláttarkjör hjá Sjúkratryggingum eins og t.d. á við um geðlækna. Greitt er allt að 6.000 kr fyrir hvert skipti allt að 12 sinnum á ári.
Meðferð á heilsustofnun Sjóðurinn greiðir styrk vegna dvalar á viðurkenndri heilsutofnun. Styrkupphæð er að hámarki 4.000 kr. á dag í allt að 24 daga á hverjum 12 mánuðum. 
Tannlækningar Sjóðurinn endurgreiðir kostnað vegna tannlækninga að hámarki 60.000 einu sinni á 12 mánaða tímabili.
Ferðakostnaður vegna veikinda félagsmanns. Hafi félagsmaður fengið synjun um greiðslu frá Sjúkratryggingum Íslands greiðir félagið kostnað skv. reglum Sjúkratrygginga Íslands. Með umsókn þarf að fylgja: Vottorð um nauðsynlega ferð, staðfestingu á komu til læknis, synjunarbréf frá SÍ. Farseðlar eða nótur vegna eldsneytis. Hámark tvær ferð á hverju 12 mánaða tímabili.

Umsóknir þarf að fylla rétt út. Starfsmaður Sjúkrasjóðs hefur ekki heimild til að afgreiða umsóknir nema þær séu rétt út fylltar og öll nauðsynleg fylgiskjöl, s.s. læknisvottorð o.s.frv. liggi fyrir. Rétt út fylltar umsóknir og fylgigögn þurfa að berast á réttum tíma að öðrum kosti frestast afgreiðsla til næstu úthlutunar.

  • Umsóknir um dagpeninga og bætur þurfa að berast fyrir 20. hvers mánaðar.
  • Umsóknir um styrki (heilsurækt, hjálpartæki osfrv.) þurfa að berast fyrir 14. eða 29. dag hvers mánaðar.
  • Dagpeningar eru greiddir út mánaðarlega, síðasta virka dag hvers mánaðar.
  • Styrkir eru greiddir 15. og síðasta virka dag hvers mánaðar og berist umsóknir eða gögn vegna umsókna of seint bíður greiðsla vegna umsóknarinnar í tvær vikur.
  • Ekki eru gerðar undantekningar á greiðsludögum nema ljóst sé að starfsmenn félagsins hafi gert mistök og að þess vegna hafi greiðsla ekki verið innt af hendi.

Nauðsynleg gögn verða að liggja fyrir til að sjóðfélagi geti fengið greitt úr sjóðnum. Þessi gögn eru:

Styrkir

  1. Frumrit sundurliðaðra reikninga með nafni umsækjanda sem sannanlega eru greiddir. á reikningunum þarf að vera útgáfudagur reiknings, áritun/stimpill/merki þess er gefur reikninginn út með upplýsingum um nafni, starfsheiti, kennitölu og heimilisfang eða símanúmer. til viðbótar þarf að skila staðfestingu á greiðslu reiknings t.d. úr íslenskum heimabanka eða greiðslukvittun frá viðkomandi fyrirtæki
  2. upplýsingar um fjölda skipta og dagsetningar meðferða eða kaup á vöru eða þjónustu sem aðeins sjóðsfélagi hefur nýtt skal koma frá á reikningi.
  3. dvöl á heilsustofnun NFLÍ í hveragerði: Fylgigögn samkvæmt lið a og b ásamt læknisvottorði frá þeim lækni sem sendi viðkomandi til dvalarinnar.
  4. launaseðlar/iðgjaldsvottorð síðustu sex eða tólf mánaða eftir atvikum hafi umsækjandi greitt til annara stéttarfélaga así á tímabilinu.
  5. umsókn vegna styrkja skal berast innan 12 mánaða frá útgáfudegi reiknings
  6. vegna umsóknar um styrk vegna heilsutegndrar vöru eða þjónustu sem er keypt erlendis þarf að leggja fram frumrit reiknings á upprunanlegu tungumáli sem inniheldur sundurliðaða kostnaðarskiptingu. einnig þarf að fylgja með bankakvittun úr íslenskum banka sem staðfestir greiðslu í íslenskum krónum. brýnt er að allur texti sé skýr og skilmerkjanlegur. starfsfólki sjóðsins er heimilt að kalla eftir þýðingu frá löggiltum skjalaþýðanda. umsækjandi greiðir kostnað við slíkt.

Sjóðurinn áskilur sér rétt til að óska eftir frumriti reiknings sem áður hefur verið sendur tilsjóðsins, áður en útborgun á sér stað

Dagpeningar

  1. Við umsókn um sjúkradagpeninga verður að leggja fram fullgilt læknisvottorð á íslensku úr upprunnið í tölvukerfum heilsugæslunnar og spítalanna. ef læknisvottorðið er tímabundir er umsækjenda bent á að endurnýja það og koma til sjúkrasjóðs standi óvinnufærni lengur en upphaflegt vottorð sagði til um. læknisvottorð eldri en 3ja mánaða eru ekki tekin gild þegar sótt er um sjúkradagpeninga eða bætur. sjúkrasjóður greiðir kostnað við endurnýjun vottorða.. sjóðurinn endurgreiðir umsækjenda læknisvottorð sé umsókn hans gild og tekin til greina
  2. staðfesting atvinnurekanda á starfshlutfalli og starfstíma og að veikindarréttur sé tæmdur og launagreiðslun frá atvinnurekanda sé lokið
  3. upplýsingar um stöðu nýtingar persónuafsláttar úr staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra sem má nálgast á rsk.is.
  4. launaseðlar/iðgjaldsvottorð síðustu sex eða tólf mánaða eftir atvikum hafi umsækjandi greitt til annara stéttarfélaga así eða bsrb á tímabilinu.
  5. önnur gögn eftir því sem við á, s.s. frá tryggingarstofnun ríkisins, upplýsingar  um greiðslur rá öðrum aðilum.
  6. réttur til dagpeninga í veikindaö og slysaforföllumfyrnist sé hans ekki vitjað innan tólf mánaða frá því að bótaréttur skaðist.

Dánarbætur

  1. Dánarvottorð.
  2. ef félagsmaður skilur eftir sig börn undir 18 ára aldri er krafist staðfestingar frá þjóðskrá íslands.
  3. sé óskað eftir að greitt sé inn á bankareikning á nafni annars en hins látna þarf yfirlýsingu um lögerfingja frá sýslumanni og umboð annarra lögerfingja til handa þeim sem sækjir um

Aðrir Sjúkrasjóðir ASÍ félaga

Vegna samninga um réttindaflutning milli sjúkrasjóða ASÍ félaga er nauðsynlegt að geta um greiðslur annarra sjúkrasjóða ASÍ félaga.

óheimilt er að greiða dagpeninga eða styrki inná bankareikning á nafni annars en umsækjanda nema fyrir liggi skriflegt umboð félagsmanns staðfest af vottum.